Sumt fólk!

Ég verð svo reið þegar ég les svona og gæti viðhaft ansi mörg orð um þessa einstaklinga sem neita konunni um bætt lífsgæði, læt það vera því ég vill ekki leggjast á þeirra plan!!!
mbl.is Vilja ekki leiðsöguhund í blokkinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20-25 ára.....

Hefði haldið að það væru frekar einhverjir krakkar sem væru að haga sér svona en ekki fullorðnir menn, en jú það er víst svo að aldur segir ekki til um þroska......skortir greinilega mikið uppá hann hjá þessum "gaurum"
mbl.is Kveikt í strætisvagnaskýli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfsagðar fréttir af "kraftaverki"

Jújú æðislegt að fá almennilega "kraftaverka"sögu einu sinni og einu sinni en manni finnst hálf asnalegt að segja ekki rétt og satt frá.

Þarna er sagt að keisaraskurður hafi verið framkvæmdur "án deyfingar" en manneskjan fékk epidural (mænurótardeyfingu) sem nota bene gæti verið ástæðan fyrir hjartastoppinu! Hvernig væri að koma með alla fréttina og reyna að hafa stærstu partana rétta, er það til of mikils mælst?


mbl.is Kraftaverk á jólum: móðir og barn lifnuðu við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

slúðurmiðlar segja

að hún hafi verið að nota kylfuna til að berja bílinn að utan og verið búin að brjóta rúðuna áður en hann keyrði niður brunahanann, reyndar sé hún ástæðan fyrir því að honum fipaðist aksturinn. Einnig að það hafi verið konan hans sem veitti honum áverkana í andlitinu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig spilast úr þessu næstu daga.


mbl.is Kona Tigers notaði golfkylfu til að hjálpa honum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fékk bara 6 millur.

Einu sinni vann ég í leikskóla hér í Hafnarfirði, átti að fá rúmar 60.000 útborgaðar en fékk rúmar 6 milljónir inná reikninginn minn, þeir voru frekar aulalegir í bankanum yfir þessu öllu saman en þeir fengu þó peninginn sinn aftur, spurning hvað maður hefði gert ef millurnar hefðu verið  600 Wink


mbl.is Létu sig hverfa eftir bankamistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósmekkleg mynd.

Þetta er alveg hræðilegur atburður, held að öllum sé það ljóst og algjör óþarfi að birta þessa mynd. Ef það er svona nauðsynlegt að birta mynd með fréttinni þá hefði verið nóg að sýna bara bílinn.


mbl.is Ók vísvitandi inn í mannfjöldann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sést EKKI frá tunglinu.

Hvernig væri að fá staðreyndirnar á hreint áður en fréttin er skrifuð, múrinn sést EKKI frá tunglinu.....bara smá useles info frá mér.


mbl.is Kínamúrinn lengri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta er satt...

þá finn ég virkilega til með barninu. Það hafa svo sannarlega peninginn til að reyna að veita barninu smá forskot á aðra en öllu má nú ofgera.
mbl.is Kröfuharðir foreldrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegt safn :)

Fór þarna fyrir fáeinum árum, fínasta skemmtun og gaman að koma þarna Wink
mbl.is Danskt kynlífssafn gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er einmitt það já :/

Held að þessir foreldrar ættu að líta í eigin barm og kannski fræða börnin sín betur um fjölbreytileika og það að við erum ekki öll eins, nei ég segi bara svona Shocking
mbl.is Ósátt við einhenta sjónvarpskonu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband